Allir sem eru með gild bókasafnskírteini hjá Bókasafninu Ísafirði geta nýtt sér þessa þjónustu. Meginhluti efnisins eru rafbækur á ensku en sífellt meira efni á íslensku er að bætast við. Fjölmargir efnisflokkar eru í boði, svo sem skáldsögur, spennusögur, ævisögur, teiknimyndasögur, lífsstílsbækur, matreiðslubækur og efni fyrir börn. Einnig má finna hljóðbækur í safninu.
Lánþegar skrá sig inn í Rafbókasafnið með númeri bókasafnsskírteinis og lykilorði (PIN-númeri), sem er það sama og notað er fyrir leitir.is. Hafðu endilega samband við safnið ef þig vantar lykilorð.
Allt efni Rafbókasafnsins má finna á leitir.is
Vefslóð Rafbókasafnsins er http://rafbokasafnid.is
Rafbókasafnið í stuttu máli:
Til þess að tengjast Rafbókasafninu með snjallsímatæki byrjar þú á því að sækja app-ið OverDrive.
Libby appið
Libby er fáanlegt í öll helstu snjalltæki og má nálgast það í Play Store (Android), App Store (IOS) og hjá Microsoft (Windows 10). Hægt er að kynna sér appið betur á https://meet.libbyapp.com/
OverDrive appið
OverDrive appið er fáanlegt fyrir iPhone®, iPad®, Android, Chromebook, Windows Phone, Windows 8 & 10, Kindle Fire HD og má nálgast t.d. í veiðeigandi veitum svo sem Play Store og App Store. Lesa má nánar um appið og sækja það á http://app.overdrive.com/
Lesbretti
Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á lesbrettum sem notast við ePub formið. Þetta eru flestar gerðir lesbretta aðrar en Kindle. Ekki er hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins í Kindle lesbrettum að Kindle Fire undanskildu.
Ef ætlunin er að lesa rafbók á lesbretti þarf að stofna Adobe ID-aðgang og hlaða niður Adobe Digital Editions forritinu á tölvu.
Bókinni er svo hlaðið niður í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar varðandi Rafbókasafnið sendu þá póst á bokasafn@isafjordur.is