Tríóið „Villi, Gunnar og Haukur“ var stofnað árið 1972 og var um árabil húshljómsveit í Gúttó á Ísafirði. Nafnið breyttist af og til og á tímabili var það „Villi, Gunnar og Baldur“ og síðar varð það „Villi, Gunnar, Baldur og Barði“. Hljómsveitin lék víða fyrir dansi og var myndin á plakatinu tekin þegar þeir félagar voru að leggja upp í ferð til Fáskrúðsfjarðar haustið 1972. Frá vinstri Gunnar Hólm Sumarliðason, Vilberg Vilbergsson og Haukur Sigurðsson.
Auglýsingin er líklega frá árunum 1972–1975 og meðal skjala í afhendingu frá Sigurði Jarlssyni fyrrv. búnaðarráðunauti Vestfjarða, vorið 2021.