UNDIR JÓLATRÉNU
Fjögur börn undir jólatré, líklega um 1960. Nöfn þeirra eru óþekkt og eru frekari upplýsingar vel þegnar. Myndin er úr fórum Jóns Guðjónssonar sem var bæjarstjóri Ísafjarðarkaupstaðar 1943-1946 og 1951-1966. Hann var fæddur á Sæbóli á Ingjaldssand 2. október 1895 og lést 26. desember 1980. Kona hans var Kristín Kristjánsdóttir frá Suðureyri, f. 5. febrúar 1900, hún lést 23. september 1983.