Á fundi bygginganefndar Ísafjarðarkaupstaðar 4. febrúar 1930 var samþykkt erindi frá Kaupfélagi Ísfirðinga um byggingalóð á horni Hafnarstrætis og Austurvegar. Framkvæmdir hófust um vorið og var byrjað á að flytja salt- og fiskþurrkunarhús sem stóð á lóðinni. Það hafði verið í eigu verslunarinnar í Hæstakaupstað en hafnarsjóður keypti húsið og lét flytja það fram á uppfyllingu hjá kolaporti J. S. Edwalds, þ.e. á bak við húsið að Hafnarstræti 5. Þessi skemmtilega mynd (ljósmyndari er óþekktur) er tekin daginn sem húsið var flutt í lok maí 1930. Á sama tíma fór fram stjórnmálafundur í Hafnarstræti vegna komandi Alþingiskosninga. Í blaðinu Vesturlandi birtist frétt um þennan atburð 2. júní s.á. þar sem segir: